Snjallræði var sett á laggirnar árið 2018 til að styðja við öflug teymi sem vinna að lausnum á samfélagslegum áskorunum samtímans. Verkefnin miða að því að styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og ná yfir svið eins og heilbrigðisþjónustu, velferðartækni, menntakerfið og jafnréttismál.
Metfjöldi umsókna barst í Snjallræði í ár, eða 68, og 11 teymi fengu inngöngu að þessu sinni. Þau eru:
- Animara: Hannar hentug og stílhrein föt fyrir einstaklinga með hreyfihömlun, sem eykur sjálfstæði og minnkar álag á umönnunaraðila.
- SKIMA: Þróar hugbúnað til að einfalda sálfræðilegar athuganir fyrir börn, sem bætir nákvæmni og skilvirkni í greiningu.
- CodonRed: Skimar eftir stökkbreytingum og skemmdum í erfðaefni.
- Velferðalag: Miðar að því að bæta líðan og auka almenna þekkingu með jákvæðum inngripum, byggð á jákvæðri sálfræði.
- CHEMeFuel: Þróar orkurík lífeldsneyti úr úrgangsefnum og grænu metanóli fyrir sjálfbæran flugrekstur með það að markmiði að draga úr kolefnislosun.
- Vitkast: Skólasamfélagið hefur lengi kallað eftir betra og fjölbreyttara námsefni. Vitkast er gagnvirkur námsvefur með verkefnum sem stækkar verkfærakistu kennara til að ýta undir áhuga nemenda og styrkir færni þeirra til framtíðar.
- Textílbarinn: Safnar og selur ónotaðan textíl auk þess að kenna hvernig má gera við og endurnýta slíkan textíl til að draga úr úrgangi.
- NúnaTrix: Býr til fræðslutölvuleiki fyrir börn sem þurfa að gangast undir læknismeðferð og rannsóknir með það að markmiði að minnka kvíða og bæta heilsulæsi.
- Heillaspor Center: Stefnir á stofnun miðstöðvar á Íslandi fyrir snemmtæka meðferð við átröskunum.
- ALDA Clinical Technologies: Þróar máltæknitól fyrir snemmtæka greiningu og eftirfylgd með taugahrörnunarsjúkdómum og málröskunum í minni tungumálum.
- Hvað nú?: Einfaldar syrgjendum úrlausn hinna fjölmörgu verkefna sem fylgja andláti ástvinar með því að auðvelda aðgengi að upplýsingum og ráðgjöf.
Teymin hófu þátttöku í Snjallræði í lok ágúst og munu á næstu vikum sækja fjölbreyttar vinnustofur, mentorafundi og ýmsa viðburði sem allir miða að því að hjálpa teymunum að þróa hugmyndir sínar frekar. Hér eru þau á vinnustofu þar sem sérfræðingar frá MIT deila þekkingu sinni með þátttakendum
Vaxtarrýmið er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri. Það er rekið í samstarfi við MITdesignX, þar sem sérfræðingar frá MIT deila þekkingu sinni með þátttakendum. Þátttakendur fá aðgang að fræðslu og þjálfun frá bæði innlendum og erlendum sérfræðingum á sviði samfélagsmála og nýsköpunar, auk fundar með reyndum mentorum. Verkefnið er styrkt af Reykjavíkurborg og Marel.