Ekki gleyma Snjallræði í sumarfríinu
Það er auðvelt að detta í sumargírinn þegar sólin lætur sjá sig, ferðaplönin taka yfir og tölvupósturinn fær smá hvíld. En fyrir teymi með góða hugmynd í farteskinu er vert að hafa eitt í huga: Það er opið fyrir umsóknir í Snjallræði háskólahraðal.
-1.png&w=3840&q=75)
Snjallræði er 16 vikna háskólahraðall fyrir samfélagslega nýsköpun. Þar fá teymi stuðning við að þróa hugmyndir, rannsóknir, vörur, þjónustu eða verkefni sem takast á við áskoranir samtímans og geta haft jákvæð áhrif á samfélag, umhverfi og framtíð. Hraðallinn er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri og er unninn í samstarfi við MIT DesignX.
Í Snjallræði fá þátttakendur aðgang að markvissu þróunarferli, vinnustofum, mentorum og sérfræðingum úr háskólasamfélaginu, atvinnulífinu og nýsköpunarumhverfinu. Þar er unnið með allt frá þarfagreiningu og mótun lausna yfir í sjálfbær viðskiptamódel, tengslamyndun, fjárhagsáætlanir og kynningu verkefna.
Hraðallinn er sérstaklega ætlaður nemendum og starfsfólki háskólanna, rannsóknarteymum, vísindafólki, frumkvöðlum og sprotum sem spretta úr háskólasamfélaginu. Háskólatengd verkefni ganga fyrir, en Snjallræði er jafnframt opið öðrum öflugum teymum sem vinna að hugmyndum með samfélagslegt gildi.
Fjölbreytt teymi hafa áður tekið þátt í Snjallræði og sýnt vel hversu ólíkar hugmyndir geta átt erindi í hraðalinn. Árið 2025 tóku meðal annars þátt verkefni sem sneru að lífrænum úrgangi og íslenskum jarðvegi, föngun og umbreytingu CO₂, jarðvarmalausnum, líftækni, inngildingu fólks af erlendum uppruna, skólamatseðlum, söngvabanka og bættri þjónustu í heilbrigðis- og velferðarkerfinu. Árið 2024 voru ellefu teymi valin til þátttöku og verkefnin fjölluðu meðal annars um áskoranir sem snerta unga sem aldna, innflytjendur, fólk með geðraskanir og náttúruna.
Þátttaka í Snjallræði hentar teymum sem vilja komast lengra með hugmynd sem skiptir máli. Hugmyndin þarf ekki að vera fullmótuð, en teymið þarf að hafa vilja til að prófa, spyrja gagnrýninna spurninga og vinna skipulega að næstu skrefum.
Sérstaklega er hvatt til umsókna alls staðar að af landinu. Góðar hugmyndir verða ekki bara til á einum stað og Snjallræði vill ná til fólks sem vinnur að lausnum fyrir ólík samfélög, ólíkar áskoranir og ólíkar þarfir.
Umsækjendur þurfa að vera í teymi. Teymin geta verið samsett úr nemendum, starfsfólki háskóla, rannsakendum, frumkvöðlum, sérfræðingum eða öðrum sem bæta hvert annað upp.
Umsóknarfrestur er til 27. ágúst 2026.
%2520(2).png&w=1080&q=75)

