snjallraedi_1-2048x1365

Sprotar ársins 2022

Sara, stelpa með ADHD: Markmið Söru, ADHD stelpunnar, er að vekja athygli barna og þeirra sem standa þeim næst á mismunandi birtingarmyndir ADHD í stelpum og strákum. Við viljum leggja okkar lóð á vogarskálarnar svo að „týndu stelpurnar“ fái þá athygli, aðstoð og skilning sem þær þurfa.

BioBuilding: Ræktun framtíðarbygginga: íslensk hampsteypa og notkunarmöguleikar hennar.

Fort vinnur gegn hröðun á tapi vöðvamassa- og vöðvastyrk (acute-sarcopenia) hjá sjúklingum sem eru rúmfastir á spítala í lengri tíma með sérstakri fótapressu til að viðhalda vöðvastyrk.

Hringvarmi ræktar grænmeti á vistvænan hátt, í nálægð við neytendur, með einstakri hringhagkerfis lausn.

Hugmyndasmiðir: Verkefnið Hugmyndasmiðir fræðir krakka um nýsköpun og dregur fram fyrirmyndir frumkvöðla af öllum kynjum, aldri, sviðum og landshlutum Íslands. Markmið verkefnisins er að efla frumkvöðlafærni krakka og hvetja þau til að skapa lausnir fyrir framtíðina.

Laufið er nýr stafrænn vettvangur með hagnýtum verkfærum og hvatakerfi sem leiðir fyrirtæki og neytendur í vegferð að grænna og sjálfbærara samfélagi.

Ylur: Hátæknigróðurhús með áherslu á hringrásarhagkerfið.

On to Something (OTS) er alþjóðlegur rafrænn viðskiptavettvangur þar sem afgangsefni ganga kaupum og sölum.

Orb þróar tækni til að mæla kolefnisbindingu skóga á ódýran og aðgengilegan hátt til að stuðla að ábyrgri kolefnisjöfnun og framleiðslu vottaðra kolefniseininga.