9. sept. 2025

Fyrsti háskólahraðall Íslands hefst!

Snjallræði verður fyrsti sameiginlegi háskólahraðall Íslands.

Snjallræði 2025 sett í gang í Grósku hugmyndahúsi

Snjallræði, fyrsti sameiginlegi háskólahraðall Íslands, hófst í síðustu viku í Grósku hugmyndahúsi með tíu glæsilegum teymum og þjálfurum frá Háskólanum á Akureyri, Háskólanum í Reykjavík og Háskóla Íslands.

Tíu teymi valin til þátttöku

Alls bárust 45 umsóknir í Snjallræði að þessu sinni og voru 10 teymin valin til að taka þátt.

Þau eru:

Araxni: Teymið er skipað þeim Mikael Norðquist og Heiðrúnu Ingu Guðmundsdóttur. Verkefni þeirra snýr að framleiðslu á sterku og umhverfisvænu köngulóarsilki til notkunar í heilbrigðis- og tæknigeiranum.

Vera: Teymið er skipað þeim Sigríði Kristínu Hrafnkelsdóttur, Hildi Harðardóttur og Birnu Björnsdóttur. Verkefnið snýr að því þróa lausnir sem brúa bilið í þjónustu og samskiptum, styrkja stöðu einstaklingra í viðkvæmri stöðu og gera heilbrigðis- og velferðakerfið skilvirkara og mannúðlegra.

Gleipnir Lífsmiðja: Teymið er skipað þeim Guðjóni Ólafssyni og Henný Adolfsdóttur. Um er að ræða líftæknifyrirtæki þar sem virkjaður er erfðamáttur gersveppa og hönnunarlíffræði nýtt til að skapa byltingarkenndar lausnir í lyfjaþróun.

CO2 conversion: Teymið er skipað þeim Younes Abghoui, Mohammad Awais og Mohammad Reza Khaniha. Verkefnið snýst um skynsamlega hönnun og uppgötvun efna til að fanga CO₂ og umbreyta því í vistvænt eldsneyti við umhverfisaðstæður með rafhvötun.


Tón-tyngi:
Teymið er skipað Helgu Rut Guðmundsdóttur, Aleksandra Kozimala, Adam J. Switala og Natalia Duarte Jeremías. Hugmyndin snýr að því að hanna umgjörð um rafrænan söngvabanka, með textum, nótum, hljóðskrám og kennsluefni, sem yrði aðgengilegur fyrir breiðan hóp notenda fagfólks, foreldra og kennara.


Lengi býr að fyrstu gerð:
Teymið er skipað þeim Kristínu Petrínu Pétursdóttur og Fannýju Kristínu H. Maríudóttur. Hugmynd þeirra byggir á því að hanna skólamatseðla með næringarríkum mat, elduðum frá grunni, sem ætlaðir eru til að kynna börn fyrir ólíku hráefni og draga úr matarsóun.


EcoDecom:
Teymið er skipað þeim Jónasi Inga Ragnarssyni, Óla Sævari Ólafssyni og Partha Sarkar. Innan EcoDecom er hugmyndin að þróa búnað sem gerir niðurrif mannvirkja á rúmsjó hagkvæmara og umhverfisvænna.


Immigrant Inclusion:
Að hugmyndinni stendur Magnea Marinósdóttir og snýr verkefnið að inngildingu fólks af erlendum uppruna með áherslu á borgaralega og lýðræðislega þátttöku.


GeoMerge:
Teymið er skipað þeim Agata Rostran Largaespada, Ximena Guardia Muguruza og Guðjóni Helga Eggertssyni. Hugmyndin snýr að þróun nýstárlegra lausna fyrir stjórnun jarðhitageyma og tækni til að bæta afköst og sjálfbærni á jarðhitasvæðum.


Charbo:
Teymið skipa þau Sigrún Emelía Karlsdóttir og Liam O'Malley. Með Charbo er ætlun þeirra að umbreyta lífrænum úrgangi í öruggan og næringarríkan áburð til þess að bæta íslenskan jarðveg, örva vöxt plantna og draga úr þörf fyrir innfluttan áburð.

Áhersla á sprotahönnun

Í Snjallræði er lögð áhersla á sprotahönnun háskólanna sem felur í sér þróun hugmynda sem eiga rætur í vísindasamfélagi háskólanna. Innan Snjallræðis þróast hugmyndirnar áfram en þau verkefni sem eru valin til leiks eru þau sem talin eru geta haft víðtæk, samfélagsleg áhrif.

Samstarf við MIT DesignX

Sem fyrr er hraðallinn rekinn í samstarfi við MIT DesignX og byggir á þeirra aðferðafræði. Í ár munu þjálfarar frá MIT háskólanum í Boston sjá um að þjálfa íslensku þjálfarana samkvæmt svokölluðu “Train the trainers” fyrirkomulagi. Það er mikill heiður en þetta er í fyrsta skipti sem þau sinna slíkri þjálfun utan MIT háskólans.